27.5 C
New York
Wednesday, August 13, 2025
Press ReleasesSíminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Síminn hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 6. júní sl. er nú lokið.

Í 33. viku 2025 keypti Síminn hf. 1.638.059 eigin hluti að kaupverði 21.949.991 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
11.8.2025 09:52 1.000.000 13,40 13.400.000 96.342.462
12.8.2025 10:27 638.059 13,40 8.549.991 96.980.521
    1.638.059   21.949.991 96.980.521

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 95.342.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 96.980.521 eða sem nemur 3,92% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 37.638.059 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,52% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.991 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/08/13/3132855/0/is/S%C3%ADminn-hf-Reglubundin-tilkynning-um-kaup-%C3%A1-eigin-br%C3%A9fum-%C3%AD-samr%C3%A6mi-vi%C3%B0-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlun.html

Recent News