Samkeppniseftirlitið tilkynnti Símanum hf. í dag að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupum Símans hf. á Greiðslumiðlun Íslands ehf. sem Síminn hf. tilkynnti opinberlega um þann 23. október sl. Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum taldi Samkeppniseftirlitið ekki tilefni til íhlutunar vegna kaupanna og hefur þar með lokið meðferð málsins.
Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2025 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 13. ágúst 2025.
THORPESCA S.A.S., nýstofnað argentínskt dótturfélag Iceland Seafood Ibérica, hefur undirritað kaupsamning við FOOD ARTS S.A. um kaup á tveimur frystitogurum, ENTRENA UNO og ENTRENA DOS, ásamt tilheyrandi veiðileyfum og sögulegum veiðiréttindum. Heildarkaupverð nemur 5,8 milljónum bandaríkjadala.