Samkeppniseftirlitið tilkynnti Símanum hf. í dag að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupum Símans hf. á Greiðslumiðlun Íslands ehf. sem Síminn hf. tilkynnti opinberlega um þann 23. október sl. Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum taldi Samkeppniseftirlitið ekki tilefni til íhlutunar vegna kaupanna og hefur þar með lokið meðferð málsins.
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Óskar hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2005, en sem fjármálastjóri frá 2011. Hann mun láta af störfum þann 1. október næstkomandi og verður forstjóra innan handar þar til ráðið hefur verið í starfið.