32.2 C
New York
Monday, July 28, 2025
Press ReleasesSíminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Síminn hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 30. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.600.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
22.7.2025 13:57 1.000.000 13,75 13.750.000 83.342.462
23.7.2025 10:16 1.000.000 13,65 13.650.000 84.342.462
24.7.2025 13:53 1.000.000 13,60 13.600.000 85.342.462
25.7.2025 13:44 1.000.000 13,60 13.600.000 86.342.462
    4.000.000   54.600.000 86.342.462

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 82.342.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 86.342.462 eða sem nemur 3,49% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 27.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,09% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 356.350.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/07/28/3122237/0/is/S%C3%ADminn-hf-Reglubundin-tilkynning-um-kaup-%C3%A1-eigin-br%C3%A9fum-%C3%AD-samr%C3%A6mi-vi%C3%B0-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlun.html

Recent News