26.8 C
New York
Monday, July 14, 2025
Press ReleasesSíminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Síminn hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 28. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 51.400.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
7.7.2025 11:08 1.000.000 12,75 12.750.000 77.342.462
8.7.2025 15:09 1.000.000 12,95 12.950.000 78.342.462
9.7.2025 11:04 1.000.000 12,95 12.950.000 79.342.462
11.7.2025 14:43 1.000.000 12,75 12.750.000 80.342.462
    4.000.000   51.400.000 80.342.462

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 76.342.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 80.342.462 eða sem nemur 3,25% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 21.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,85% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 276.550.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/07/14/3114539/0/is/S%C3%ADminn-hf-Reglubundin-tilkynning-um-kaup-%C3%A1-eigin-br%C3%A9fum-%C3%AD-samr%C3%A6mi-vi%C3%B0-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlun.html

Recent News