25.6 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesSíminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Síminn hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 25. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 54.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
16.6.2025 10:29 1.000.000 13,700 13.700.000 63.342.462
18.6.2025 10:25 1.000.000 13,700 13.700.000 64.342.462
19.6.2025 09:47 1.000.000 13,550 13.550.000 65.342.462
20.6.2025 13:15 1.000.000 13,300 13.300.000 66.342.462
    4.000.000   54.250.000 66.342.462

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 62.342.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 66.342.462 eða sem nemur 2,68% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 7.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,28% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 95.700.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/23/3103181/0/is/S%C3%ADminn-hf-Reglubundin-tilkynning-um-kaup-%C3%A1-eigin-br%C3%A9fum-%C3%AD-samr%C3%A6mi-vi%C3%B0-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlun.html

Recent News