Brim hf. Niðurstöður tilboðs Brims hf. vegna endurkaupa á eigin bréfum
Félaginu bárust samþykkt tilboð frá hluthöfum félagsins fyrir samanlagt 69.001.150 hlutum að nafnvirði. Gengið var 88 kr. fyrir hvern hlut og nemur samanlagt kaupverð hluta því 6.072.101.200 kr. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 3. júní 2026. Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög, þar á meðal lög um hlutafélög nr. 2/1995 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Við dagsetningu tilkynningar þessarar á Brim 30.532.917 hluti sem samsvarar 1,56% af heildarhlutafé félagsins. Við það mun bætast 20.773.778 hlutir við uppgjör á sölu á Melnesi ehf. og síðan 69.001.150 hlutir samkvæmt samþykktum tilboðum, en þá mun félagið eiga sem samsvarar 6,15% eða 120.307.845 hluti af heildarhlutafé félagsins.


