Í viku 27 árið 2025 keypti Kaldalón hf. enga hluti í endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 30. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 15.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 350.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst þriðjudaginn 1. júlí 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2025.
Kaldalón hf. átti enga hluti í upphafi endurkaupaáætlunar.
Kaldalón hefur enga hluti keypt samkvæmt áætluninni.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
jon.gunnarsson@kaldalon.is