25.6 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesTelecommunicationsSíminn hf. – Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki SIMINN 28 1.

SIMINN 28 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,3% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 5. júní 2028. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.200 m.kr. á pari (genginu 100,0).

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 12. júní 2025.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is.
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: oskarh@siminn.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/04/3093909/0/is/S%C3%ADminn-hf-%C3%9Atg%C3%A1fa-%C3%A1-n%C3%BDjum-skuldabr%C3%A9faflokki.html

Recent News