Í samræmi við starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi Alvotech þann 6. júní 2023 og þar sem nýtt starfsár stjórnar hefst með aðalfundi, voru á aðalfundi félagsins sem haldinn var 25. júní sl. veittir kaupréttir til fjögurra óháðra stjórnarmanna. Hver stjórnarmaður fékk rétt til kaupa á alls 24.784 hlutum í Alvotech.
Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.
Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO-SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið afhent bréf til þátttakenda í lokuðu hlutafjárútboði sem fram fór þann 4. júní sl. Um 40 stofnanafjárfestar tóku þátt í útboðinu. Um 60% af heildareftirspurninni kom frá fjárfestum í Svíþjóð, Noregi og Bretlandi, um 30% frá sjóðum í Bandaríkjunum og um 10% frá Íslandi. Yfir 80% bréfanna voru keypt af fjárfestum sem eru nýir hluthafar í Alvotech.
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.