Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
THORPESCA S.A.S., nýstofnað argentínskt dótturfélag Iceland Seafood Ibérica, hefur undirritað kaupsamning við FOOD ARTS S.A. um kaup á tveimur frystitogurum, ENTRENA UNO og ENTRENA DOS, ásamt tilheyrandi veiðileyfum og sögulegum veiðiréttindum. Heildarkaupverð nemur 5,8 milljónum bandaríkjadala.
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Nova. Hún mun taka við starfinu af Margréti Tryggvadóttur sem tilkynnti í byrjun sumars að hún hygðist láta af störfum í lok árs. Sylvía hefur störf hjá Nova með haustinu.
Iceland Seafood International hf. („ISI hf.“) hefur með góðum árangri lokið endurfjármögnun fyrir árið 2025.Með þessari endurfjármögnun styrkist fjárhagsstaða félagsins verulega, meðal annars með endurskipulagningu skulda, lækkun vaxtakostnaðar og bættri lausafjárstöðu.