Nova Klúbburinn hf. birtir árshlutauppgjör annars ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 14. ágúst.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 15. ágúst, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð.
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum.
Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt kynningarefni á heimasíðu Nova.
Velkomið er að senda spurningar fyrir kynningarfundinn eða á meðan á honum stendur á netfangið fjarfestatengsl@nova.is.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálstjóri Nova, á fjarfestatengsl@nova.is.