30.2 C
New York
Tuesday, August 12, 2025
Press ReleasesREITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 32 viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 570.000 eigin hluti að kaupverði 63.190.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
5/8/25 10:38 100.000 113,00 11.300.000 7.380.000
6/8/25 14:45 70.000 112,00 7.840.000 7.450.000
7/8/25 11:20 100.000 110,00 11.000.000 7.550.000
7/8/25 14:36 100.000 110,50 11.050.000 7.650.000
8/8/25 10:38 100.000 110,00 11.000.000 7.750.000
8/8/25 14:49 100.000 110,00 11.000.000 7.850.000
           
Samtals   570.000   63.190.000 7.850.000

Reitir hafa nú keypt samtals 3.650.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 86,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 415.020.000 kr. sem samsvarar 83,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. 

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. 

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.850.000 eigin hluti fyrir 891.637.470 kr. 

Reitir eiga nú samtals 7.850.000 eigin hluti, eða um 1,13% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 689.150.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/08/11/3130790/0/is/REITIR-Framkv%C3%A6md-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlunar-%C3%AD-viku-32.html

Recent News