22.4 C
New York
Thursday, August 7, 2025
Press ReleasesFinanceLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga – Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 6. ágúst 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 11. ágúst 2025.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 1.900.000.000 á bilinu 3,99% – 4,30%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 4,05%. Útistandandi fyrir voru ISK 38.762.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 39.862.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 100.000.000 á kröfunni 3,64%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð. Heildarstærð flokksins er ISK 36.085.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000).

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/08/06/3128541/0/en/L%C3%A1nasj%C3%B3%C3%B0ur-sveitarf%C3%A9laga-Ni%C3%B0ursta%C3%B0a-%C3%BAr-skuldabr%C3%A9fa%C3%BAtbo%C3%B0i.html

Recent News