22.3 C
New York
Monday, August 4, 2025
Press ReleasesREITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. júlí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. júlí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í viku 31 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 770.000 eigin hluti að kaupverði 87.610.000 kr.  skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
28/7/25 15:20 100.000 114,00 11.400.000 6.610.000
30/7/25 10:32 100.000 114,00 11.400.000 6.710.000
30/7/25 14:13 100.000 114,00 11.400.000 6.810.000
31/7/25 10:34 100.000 114,00 11.400.000 6.910.000
31/7/25 13:03 100.000 114,00 11.400.000 7.010.000
1/8/25 11:08 100.000 114,00 11.400.000 7.110.000
1/8/25 13:11 70.000 113,00 7.910.000 7.180.000
1/8/25 13:50 100.000 113,00 11.300.000 7.280.000
           
Samtals   770.000   87.610.000 7.280.000

Reitir hafa nú keypt samtals 3.080.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 73,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 351.830.000 kr. sem samsvarar 70,4,% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. 

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. 

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 7.280.000 eigin hluti fyrir 828.447.470 kr. 

Reitir eiga nú samtals 7.280.000 eigin hluti, eða um 1,04% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 689.720.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/08/04/3126366/0/en/REITIR-Framkv%C3%A6md-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlunar-%C3%AD-viku-31.html

Recent News