29.5 C
New York
Monday, July 21, 2025
Press ReleasesNova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29

Í 29. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.628.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
14.7.2025 09:59 600.000 4,88 2.928.000
15.7.2025 15:04 600.000 4,86 2.916.000
16.7.2025 09:56 600.000 4,88 2.928.000
17.7.2025 10:21 600.000 4,86 2.916.000
18.7.2025 12:47 600.000 4,90 2.940.000
Samtals 3.000.000   14.628.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 23.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 26.400.000 hluti, eða um 0,74% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 127.494.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/07/21/3118922/0/is/Nova-Kl%C3%BAbburinn-hf-Framkv%C3%A6md-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlunar-%C3%AD-viku-29.html

Recent News