Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CB 25 á fyrirframákveðna verðinu 99,204.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 600 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CB 25.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 9. júlí 2025.