25.6 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesConsumer ServicesHagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Hagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Hagar hf. ákváðu að taka tilboðum fyrir 1.000.000 hluti á genginu 103 í endurkaupum sem tilkynnt var um föstudaginn 27. júní 2025. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 2. júlí 2025.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Hagar hf. eiga 9.075.867 hluti eða sem nemur 0,82% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/30/3107268/0/is/Hagar-hf-Ni%C3%B0urst%C3%B6%C3%B0ur-%C3%AD-endurkaupum-%C3%A1-eigin-br%C3%A9fum-me%C3%B0-%C3%B6fugu-tilbo%C3%B0sfyrirkomulagi.html

Recent News