25.6 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesFinanceFossar fjárfestingarbanki hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki FOS 040728 sem gefinn er út undir 12.000.000.000 útgáfuramma bankans.

FOS 040728 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber 9,03% vexti, sem greiddir eru tvisvar á ári til lokagjalddaga 4. júlí 2028. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 9,23%.

Skuldabréfin voru seld í einkaútgáfu (e. private placement). Nafnverðseining skuldabréfanna er 20 m.kr. og var útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka hf. hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Uppgjörsdagur viðskiptanna er áætlaður 4. júlí 2025.

Nánari upplýsingar:

Arnar Friðriksson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 865-8101
Netfang: arnar.fridriksson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/27/3106729/0/is/Fossar-fj%C3%A1rfestingarbanki-hf-%C3%9Atg%C3%A1fa-%C3%A1-n%C3%BDjum-skuldabr%C3%A9faflokki.html

Recent News