23.5 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesNova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24

Í 24. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.664.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
10.6.2025 10:19 600.000 4,89 2.934.000
11.6.2025 12:23 600.000 4,85 2.910.000
12.6.2025 15:03 600.000 4,85 2.910.000
13.6.2025 09:39 600.000 4,85 2.910.000
Samtals 2.400.000   11.664.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 10.200.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 12.600.000 hluti, eða um 0,35% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 60.774.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/16/3099637/0/is/Nova-Kl%C3%BAbburinn-hf-Framkv%C3%A6md-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlunar-%C3%AD-viku-24.html

Recent News