32.3 C
New York
Thursday, July 3, 2025
Press ReleasesREITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 23

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 23

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.                            

Í 23. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 620.870 eigin hluti að kaupverði 73.211.790 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Gengi Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
2/6/25 10:38 100.000 118,00 11.800.000 1.467.126
2/6/25 14:38 870 117,00 101.790 1.467.996
3/6/25 14:27 100.000 118,00 11.800.000 1.567.996
4/6/25 09:43 20.000 118,00 2.360.000 1.587.996
4/6/25 14:58 100.000 118,00 11.800.000 1.687.996
4/6/25 15:02 100.000 118,00 11.800.000 1.787.996
5/6/25 12:18 100.000 118,00 11.800.000 1.887.996
6/6/25 13:58 100.000 117,50 11.750.000 1.987.996
           
Samtals   620.870   73.211.790 1.987.996

Reitir hafa nú keypt samtals 1.987.996 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 47,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 229.475.532 kr. sem samsvarar 45,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Frá birtingu uppgjörs fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 1.987.996 eigin hluti fyrir 229.475.532 kr.               

Reitir eiga nú samtals 1.987.996 eigin hluti, eða um 0,29% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 695.012.004.                          

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.

Source: https://www.globenewswire.com/news-release/2025/06/10/3096505/0/is/REITIR-Framkv%C3%A6md-endurkaupa%C3%A1%C3%A6tlunar-%C3%AD-viku-23.html

Recent News